Úrslit veiðipróf 202008 við Bláfinnsvatn

Úrslit eru komin inn frá veiðiprófi dagsins við Bláfinnsvatn. Dómari Lars Nordenhof setti upp krefjandi og skemmtileg próf í öllum flokkum. Svæðið var nokkuð erfitt yfirferðar en aðstæður annars mjög góðar. Bestu hundar í flokkum voru í BFL Skjaldar Emma með 1.einkunn, eigandi Elmar Einarsson, í OFL Heiðarbóls Katla með 2. einkunn, eigandi Guðlaugur Guðmundsson, […]

Veiðipróf helgina 15. og 16. ágúst við Bláfinnsvatn í Flókadal

Næstu veiðipróf númer 202008 og 09 verða haldin við Bláfinnsvatn í Flókadal. Dómari verður Lars Nordenhof frá Danmörku, fulltrúi HRFÍ verður Kjartan I. Lorange, prófstjórar eru Kári Heiðdal og Vilhelm Jónsson. Nafnakall verður kl.9.00 báða dagana og prófað er í öllum flokkum. Skráningar eru góðar, það er þörf á hjálparhundum í OFL og ÚFL-B og […]

Til hamingju með hvolpinn

Allir sem rækta ættbókarfærða retriever hvolpa hjá HRFÍ geta fengið gefins góðan bækling “Til hamingju með hvolpinn” sem er gefinn út af Retrieverdeild HRFÍ. Þetta er stutt kynning á retriever hvolpum og ummönnun þeirra fyrir byrjendur. Þessi bæklingur var upphaflega þýddur og staðfærður af Halldóri Björnssyni, Leifi Þorvaldssyni og Sigurði Magnússyni fyrir deildina. Hann var […]

Úrslit frá veiðiprófi 202007 við Tjarnhóla

í dag var haldið veiðipróf við Tjarhóla númer 202007. Dómari var Sigurður Magnússon, fulltrúi HRFÍ Halldór Garðar Björnsson og prófstjóri Ævar Valgeirsson. 16 hundar voru skráðir í dag allt labrador. 8 hundar í BFL og fengu allir einkunn 7 1.einkunn og einn 2.einkunn, Besti hundur í flokki var Hrafnsvíkur Ben með 1.einkunn, stjórnandi Kristján Smárason. […]

Búið að opna fyrir próf 202008-0

Opið er fyrir skráningu á veiðipróf 202008 og 09 sem verða haldin við Bláfinnsvatn í Flókadal, 15. og 16. ágúst n.k.. Þetta er nýtt svæði og verður spennandi að koma á nýjar slóðir. Dómari verður Lars Nordenhof frá Danmörku, fulltrúi HRFÍ verður Kjartan I. Lorange, prófstjóri Kári Heiðdal. Eins og venja er fær besti hundur […]

Deildarviðburður 2020, Deildarsýning 26.september

Deildarsýning retrieverdeildar er áætluð 26.september 2020. Hún verður haldin í Reiðhöll hestamannafélagsins Mána í Keflavík, Sörlagrund 6.  Dómari verðu Jan-Erik Ek frá Svíþjóð, hann hefur dæmt í mörg ár á norðurlöndum og víðar, sérfróður um retrieverhunda og hefur verið virkur labrador ræktandi. 27.september er svo veiðipróf 202011, dómari verður Jens Magnús Jakobsson, fulltrúi Sigurður Magnússon […]

Úrslit próf 202006

Úrslit og umsagnir eru komnar inn frá sunnudeginum 5.júlí í Húsafelli. Sigurður Magnússon setti upp skemmtileg próf í öllum flokkum og sem fyrr voru hundar í öllum flokkum á háum standard ásamt stjórnendum. bestu hundar í flokkum voru: BFL Ljónshjarta Lea með 1.einkunn, eigandi og stjórnandi Víðir Lárusson OFL BFLW-19 Huntingmate Atlas með 1.einkunn, eigandi […]

Prófi 202005 er lokið

Í dag fór fram próf 202005 við Sílatjörn, dómari var Sigurmon Hreinsson, fulltrúi HRFÍ Sigurður Magnússon, prófstjórara Svava Guðjónsdóttir og Guðrún Ragnarsdóttir. Sigurmon vann vel með svæðið og setti upp krefjandi og skemmtileg próf, prófaðir voru 10 hundar í BFL, 5 hundar í OFL og 1 í ÚFL-b. Bestu hundar í flokkum voru BFL: Skjaldar […]