Ársfundur deildarinnar

Ársfundur deildarinnar verður haldinn í Síðumúla 15 miðvikudaginn 24.mars 2021 og hefst kl.20.00 Verkefnið eru hefðbundin ársfundarstörf. Farið yfir ársskýrslu stjórnar fyrir 2020 Farið yfir rekstrareikning fyrir 2020 Val í nefndir Kosið til stjórnar Retrieverdeildar. Þrjú sæti eru laus til tveggja ára. Stighæsti hundur á veiðiprófum 2020 heiðraður Önnur mál. Samkvæmt reglum um ræktunardeildir er […]

Dagskrá 2021

Dagskrá fyrir veiðipróf, deildarsýningu og vinnupróf hefur verið samþykkt og er komin á heimasíðu. Skemmtilegt ár framundan og sannarlega viðburðir til að hlakka til. Nefndir munu svo koma inn með sínar dagskrár eins og hægt verður, veiðinefnd með hittinga og sýningarnefnd með sýningarþjálfanir. Eins og fram kemur er áætlað retriever námskeið með Oliver Kirali, það […]

Uppfærðar upplýsingar um ræktun

Gleðilega hátíð kæru félagar. Ræktunarmarkmið hafa tekið breytingum í takt við nýjar reglur frá Staðla og ræktunarnefnd HRFÍ sem taka gildi 1.mars n.k. og má finna allt um það inná heimasíðu HRFÍ undir reglur. Eins hefur texti verið uppfærður á heimasíðu í takt við breyttar reglur undir “Deildin/um deildina” og svo líka “Ræktun/Ræktunarmarkmið retrieverdeildar” Á […]

Hátíðarkveðja

Kæra retrieverfólk, Nú rennur þetta einkennilega ár sitt skeið á næstu dögum.  Það hefur verið krefjandi fyrir okkur öll að takast á við takmarkanir og það sem þessi faraldur hefur boðið uppá. Þá er gott að eiga góðan hund eða hunda til að geta notið samvista við. Hundalífið í kringum deildina hefur verið með öðrum […]

Breitingar á reglum um skráningu í ættbók

Kæra retrieverfólk og ræktendur.  Í júní s.l. voru kynntar á heimasíðu HRFÍ breytingar á reglum um skráningu í ættbók breytingar við kafla 10.  Frétt um þetta er hér Þessar breyttu reglur áttu að taka gildi frá og með 1.janúar 2021 og eiga við um heilsufar pörunardýra við pörun.  Gildistöku hefur verið frestað til 1.mars 2021 […]

Meistarakeppnin 2020 færð til næsta árs

Í ljósi aðstæðna hefur veiðinefnd ákveðið að fresta meistarakeppninni í ár. Ástandið í þjóðfélaginu býður ekki uppá uppskeruhátíð eins og hún á að vera, hertar reglur núna gera það að verkum að seinka þyrfti jafnvel þar til í lok mánaðar og það er mjög óljóst. Dagsbirta er að styttast ansi mikið, rjúpnahelgar að skella á.  […]

Stigahæstu hundar á veiðiprófum 2020

Nú þegar veiðiprófum er lokið er stigasöfnun komin á hreint. Stigahæsti hundur 2020 er OFLW-19 FTW-20 ISFTCH Heiðarbóls Dimma, eigandi og stjórnandi Heiðar Sveinsson í öðru sæti er FTW-19 ISFTCH Ljósavíkur Nínó, eigandi og stjórnandi Ingólfur Guðmundsson, þetta er 7 árið í röð sem Nínó er í topp 3 sem stigahæsti hundur, en það er […]

Úrslit frá veiðiprófi 202011

Í dag lauk veiðiprófatímabilinu formlega með síðasta prófinu sem haldið var við Villingavatn. Dómari var Sigurmon M. Hreinsson, fulltrúi HRFÍ Margrét Pétursdóttir og prófstjóri Arnar Tryggvason. 15 hundar voru í prófi og prófað var í öllum flokkum. Sigurmon setti upp skemmtileg og krefjandi próf í öllum flokkum sem reyndu á hunda og stjórnendur í takt […]