Category Archives: Fréttir

Búið er að opna fyrir próf 202110 og 11

Síðustu veiðipróf ársins verða 17. og 19. september nk. Dómari verður Boye Rasmussen frá Danmörku, Boy hefur víðtæka reynslu af þjálfun og keppni með retriever hundum og er með alþjóðleg dómararéttindi. Fulltrúi HRFÍ verður Jens Magnús Jakobsson og prófstjóri Arnar Tryggvason. Próf 202110 verður við Draugatjörn föstudaginn 17. september. Próf 202111 verðru við Villingavatn sunnudaginn […]

Deildarsýning Retrieverdeildarinnar 18. september

Deildarsýningin 2021 verður haldin þann 18. september í reiðhöllinni Mánagrund í Keflavík. Sven Slettedal dómari og labrador ræktandi frá Noregi kemur og dæmir. Það er opið fyrir skráningar! Athugið skráningaferstur er til 23:59 þann 5. september. Boðið verður upp á keppni ungra sýnenda í báðum aldursflokkum, hvolpaflokk frá 3. mánaða aldri, afkvæmahópa, ræktunarhópa og parakeppni. […]

Úrslit próf 202107

Í dag 7. ágúst var haldið veiðipróf á Murneyrum á Skeiðum. Dómari var Jens Magnús Jakobsson, fulltrúi HRFÍ Halldór Garðar Björnsson og prófstjór Víðir Lárusson. Þórhallur Atlason gekk með sem dómaranemi. Prófað var í öllum flokkum og eru úrslit kominn inná heimasíðu hér Dómari setti upp skemmtileg og krefjandi próf í öllum flokkum og nýtti […]

Opið fyrir skráningu á próf 202109

Opnað hefur verið fyrir skráningu á veiðipróf 202109 sem haldið verður við Bláfinns vatn í Flókadal í Borgarfirði 28. ágúst nk. Dómari verður Halldór Garðar Björnsson, fulltrúi HRFÍ Sigurmon Hreinsson og prófstjóri Guðrún Ragnarsdóttir. Að vanda veitir Eukanuba verðlaun fyrir bestu hunda og að auki veitir Veiðihúsið Sakka aukaverðlaun fyrir bestu hunda á þessu prófi […]

Próf 202107-8

Vegna dræmrar skráningar á næstu próf helgina 7. og 8. ágúst nk. hefur verið ákveðið að fella niður sunnudagsprófið 8. ágúst.  Prófið 7. ágúst verður haldið við Murneyrar. Skráningarfrestur hefur einnig verið lengdur og er nú opið fyrir skráningu til miðnættis 30.júlí.  Eins bendum við á að samkvæmt reglum er alltaf hægt að heyra í […]

Búið að opna fyrir próf 202107-08

Opnað hefur verið fyrir skráningar á næstu próf sem verða haldin 7. og 8. ágúst nk. sem verða haldin við Murneyrar og Þrándarholt. Bjarne Holm er skráður dómari þessa daga, það er því miður enn óvissa með hvort hann kemst vegna sóttvarnareglna. Jens Magnús Jakobsson mun dæma báða dagana ef Bjarne kemst ekki. 19.júní, uppfært, […]

Stigahæstu hundar á veiðiprófum 2021

Eins og undanfarin ár hefur verið haldið utanum stigaskor á veiðiprófum. Núna þegar 5 af 11 áætluðum prófum eru búin er Skjaldar Castró stigahæstur með 58 stig, eigandi og stjórnandi Ævar Valgeirsson. Aðsókn að þessum fyrstu 5 prófum er líklega metaðsókn hjá okkur. 33 hundar hafa tekið þátt og alls 88 hundar tekið próf. meðalþáttaka […]

Próf 202104-5 í Eyjafirði

Skráningar eru mjög góðar á bæði prófin sem verða í Eyjafirði helgina 3. og 4. júní nk. 3. júní verður prófið við Eyjafjarðará fyrir neðan Berjaklöpp, það má sjá leið frá Akureyri á korti hér að neðan. Dómari 3.júní verður Sigurður Magnússon og fulltrúi HRFÍ Kjartan I. Lorange. Prófstjóri er Sigurður B. Sigurðsson 4. júní […]