Category Archives: Fréttir

Búið að opna fyrir skráningu á próf 202208 og 9

Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf 202208 og 09  sem haldin verða helgina 6. og 7. ágúst nk.   Dómari verður Susanne Andersen frá Danmörku, fulltrúi HRFÍ verður Sigurður Magnússon, prófstjóri Víðir Lárusson. Þessi próf verða við Þjórsá og nákvæm staðsetning kemur fram hjá prófstjóra þegar nær dregur. Að venju verða veitt verðlaun fyrir […]

Búið að opna fyrir skráningu á próf 202207

Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf 202207 sem haldið verður laugardaginn 9. júlí við Sílatjörn í Borgarfirði. Dómari verður Sigurmon Hreinsson fulltrúi HRFÍ verður Kjartan I. Lorange, prófstjóri Gunnar Örn Arnarson. Prófsvæðið við Sílatjörn er skemmtilegt og fallegt og aðkoma mjög góð. Að venju verða veitt verðlaun fyrir besta hundi í flokki og eru […]

Opnað hefur verið fyrir skráningu á veiðipróf 202205-6

Opnað hefur verið fyrir skráningu á prófin 202205-06 sem haldin verða helgina 25. og 26. júní nk.   Dómarar verða Sigurmon Hreinsson fyrri daginn og Margrét Pétursdóttir seinni daginn, þau eru svo fulltrúar HRFÍ dagana sem þau eru ekki fyrsti dómari, prófstjóri Fanney Harðardóttir. Þessi próf verða í Eyjafirði og nákvæm staðsetning kemur fram hjá […]

Staðsetning næstu próf

Næstu próf 202203 og 04 verða haldin við Tjarnhóla báða dagana. Vatnsstaða á Tjarhólum er góð í báðum tjörnum. Tjarnhólar eru einstaklega áhorfendavænir fyrir veiðipróf og vonumst við eftir að sjá góða aðsókn. Dómari verður Trine-lise Tryterud frá Noregi, fulltrúi HRFÍ Halldór Björnsson og prófstjóri Guðrún Ragnarsdóttir. Eins og áður þetta sumar verður notast við […]

Opnað fyrir skráningu á veiðipróf 202203 og 4

Opnað hefur verið fyrir skráningu á prófin 202202-03 sem haldin verða helgina 4 og 5. júní nk.   Dómari verður Trine-lise Tryterud frá Noregi, fulltrúi HRFÍ Halldór Björnsson og prófstjóri Guðrún Ragnarsdóttir. Þetta próf er fyrirhugað að verði í nágrenni Reykjavíkur og var Draugatjörn eini ákveðni staðurinn.  Við skoðun kom í ljós að álftapar er […]

Dagskrá Meistarasýningar Retrieverdeildar 2022

Hringur 1Dómari : Margaret Brown 10:00Labrador Retriever Hádegishlé eftir ungliða tíkur Áætlað að dómar hefjist aftur kl. 13:00 Hringur 2Dómari : Liam Moran 10:00Labrador Retriever ungviði og hvolparGolden Retriever hvolparBIS HvolparNova Scotia Duck Tolling Retriever Hádegishlé Áætlað að Golden Retriever hefjist kl. 13:00 Áætlað er að BIS úrslit hefjist um 15:30BIS ungliðiBIS veiðihundurBIS öldungurBIS afkvæmahópurBIS […]

Breyting á bráð í prófi 202201

Kæru félagar,Í ljósi þeirrar stöðu og tilmæla frá MAST varðandi fuglaflensu tilfelli hefur stjórn Retrieverdeildar og Stjórn HRFÍ samþykkt að notuð verði “dummy” í næstu prófum í stað fugla og stjórn HRFÍ samþykkt undanþágu frá reglum þar að lútandi. Allavegana meðan þessi óvissa um framgang þessarar pestar er að ræða. Við munum því nota “dummy” […]

Opnað hefur verið fyrir próf 202202

Opnað hefur verið fyrir skráningu á 202202 sem verður haldið við Tjarnhóla laugardaginn 14. maí n.k. Dómari verður Jens Magnús Jakobsson, fulltrúi HRFÍ Sigurmon M. Hreinsson og prófstjóri Ævar Valgeirsson. Tjarnhólar eru í nágrenni Reykjavíkur uppá Nesjavallaleið, frábært prófsvæði með góðri aðstöðu til að fylgjast með. Þetta er annað prófið í sumar af 11 b-prófum […]

Næsta próf á laugardaginn 23. apríl

Næsta laugardag 23.apríl verður haldið veiðipróf við Seltjörn á Reykjanesi. Skráningar eru mjög góðar og að óbreyttu verður prófað í öllum flokkum.  Seltjörn er við afleggjarann til Grindavíkur og sést mjög vel hægra megin við vegin stuttu eftir að farið er af Reykjanesbrautinni.  Sjá má leiðsögn hér meðfylgjandi. Nafnakall verður kl.9.00 á prófsvæði Nákvæm staðsetning […]