Veiðipróf við Draugatjörn næstkomandi laugardag 22.september.

Þá er komið að síðasta prófi ársins hjá Deildinni, nafnakall verður klukkan 9:00 og hefst prófið í framhaldi.

Allir velkomnir að koma og fylgjast með flottum hundum og hitta skemmtilegt fólk á frábæru  prófsvæði.

Skemmtinefnd verður á svæðinu að selja kaffiveitingar á meðan á prófi stendur. Athugið að þar er einungis tekið við peningum.

Prófstjóri óskar eftir fólki til að aðstoða við prófið. Vinsamlega verið í sambandi við Þórhall í síma 897-9904.