Búið að opna fyrir skráningu á próf 201807 og 08

Opnað hefur verið fyrir skráningu á næstu veiðipróf 201807 og 08 sem haldin verða í nágrenni Reykjavíkur 11 og 12 ágúst.

Prófdómari er Peter Nordin frá Svíþjóð, fulltrúi HRFÍ Sigurður Magnússon og prófstjóri Kári Heiðdal.

Prófin verða haldin við Draugatjörn og Villingavatn sem eru vel þekktir prófstaðir með marga möguleika.