WT 201803 á Murneyrum

Flottur dagur að baki á Murneyrum þar sem Retrieverdeildin stóð fyrir WT vinnuprófi.

10 hundar prófaðir, 7 í BFL og 3 í OFL, allir hundar sýndu fína vinnu.  Dómarar voru Mangus Anslokken og Sigurmon Hreinsson og þökkum við þeim gott starf.

Úrslit eru komin inná heimasíðu hér 

Innilega til hamingju öll með árangur dagsins.

Á myndinni eru Sigurmon Hreinsson dómari, Ásmundur Ísak Jónsson og Klettavíkur Dr. Kata 1.sæti í OFL með 67 stig, Hólmfríður Kristjánsdóttir og Heiðarbóls Emma frá Hrafnsvík, 1.sæti í BFL með 98 stig, Gunnar Örn Arnarson og Perla 2.sæti í BFL með 97 stig og Mangus Anslokken dómari.