Búið að opna fyrir vinnu- og veiðipróf á deildarviðburði

Nú hefur verið opnað fyrir skráningu á vinnupróf WT sem verður haldið 13.júlí að Murneyrum og veiðipróf 201806 sem verður haldið við Þrándarholt 15.júlí.

Þessi próf eru deildarviðburðarprófin og vonandi list fólki á þessa nýlundu að hafa WT á föstudeginum. Þá er prófað með dummy og á 5 mismunandi stöðvum. Prófað verður í öllum flokkum.

Tjaldsvæðið í Brautarholti á Skeiðum er frátekið fyrir deildarviðburð og deildarsýningu sem verður haldin 14.júlí opið fyrir skráningu.

Murneyrar eru rétt norðan við Brautarholt og Þrándarholt er á leið í Árnes og sést vel frá veginum, verður skerpt á þessu þegar nær dregur.