Dagur Jónsson veiðprófsdómari er látinn

9. febrúar síðastliðinn lést Dagur Jónsson eftir erfið veikindi. Dagur skipaði stóran sess í starfi Retrieverdeildar á liðnum árum og áratugum. Sat í stjórn deildarinnar frá 2002 til 2008, var virkur í veiðinefnd og tók virkan þátt í nefndarstörfum og öðru er viðkom starfi deildarinnar. Dagur fékk dómararéttindi til að dæma veiðipróf fyrir retrieverhunda 2010. Jafnframt var Dagur öflugur ræktandi sem studdi marga nýliðana út í hundalífið með retriever hundum. Við þökkum Degi hans framlag til starfsins, blessuð sé minning hans, vottum ættingjum og vinum samúð. f.h. Retrieverdeildar HRFÍ Stjórn Retrieverdeildar