Virkar umræðurVirkar umræður  Birta lista yfir meðlimi spjallborðsinsNotendur  Leita á spjallinuLeit  HjálpHjálp
  NýskráNýskrá  InnskráInnskrá
Hjálp spjallborðsins
 Spjallsvæði Retrieverdeildarinnar : Hjálp spjallborðsins

Veldu viðfangsefni sem getur hjálpað
Skráning og innskráning á spjallboðið
Afhverju get ég ekki innskráð mig?
Verð ég að skrá mig sem notanda?
Gleymt lykilorð
Ég hef skráð mig sem notanda fyrir nokkru síðan en get ekki innskráð mig
 
Forgangsréttur notanda og uppsetning spjallborðsins.
Hvernig breyti ég uppsetningu á minni?
Dagsetning og tími passar ekki við minn tíma
Hvað gefur staða mín í ljós?
Get ég breytt stöðu minni?
 
Send umræðuefni
Hvernig tek ég þátt í umræðunum?
Hvernig eyði ég sendum skeytum?
Hvernig breyti ég sendum skeytum?
Hvernig læt ég undirskrift fylgja sendum skeytum?
Hvernig bý ég til könnun?
Afhverju get ég ekki skoðað umræðuhóp?
Rich Text ritill (WYSIWYG) til að senda skeyti
 
Hönnun skeyta
Hvað er merkjamál spjallborðsins?
Get ég notað HTML?
Hvað eru tilfinningatákn (Broskarlar)?
Get ég sent inn myndir?
Hvað eru lokaðar umræður?
 
Notendahópar
Hvað eru vefstjórar?
Hvað eru stjórnendur?
Hvað eru notendahópar?
 
Einkaskilaboð
Ég get ekki sent einkaskilaboð
Ég get ekki sent einkaskilaboð til sumra notenda
Hvernig get ég komið í veg fyrir að einhver sendi mér persónuleg skilaboð?

Skráning og innskráning á spjallboðið
Afhverju get ég ekki innskráð mig?
Til að geta innskráð þig á spjallborðið þá þarftu að rita notandanafn og lykilorð sem þú valdir þegar skráðir þig á spjallrásina. Ef þú hefur ekki skráð þig sem notandan á spjallrásina þá verður þú að gera það áður en þú getur innskráð þig. Ef þú hefur skráð þig sem notanda en getur samt ekki innskráð þig, þá skaltu athuga hvort cookies séu mögulegar í vafranum þínum, það getur verið að þú þurfir að bæta þessari síðu við fyrir öruggar vefsíður. Ef þú hefur verið útilokuð/útilokaður frá spjallborðinu þá getur það verið ástæðan fyrir því að þú getir ekki innskráð þig, í því tilfelli hafðu þá samband við vefstjóra.
Fara efst í skjal
 
Verð ég að skrá mig sem notanda?
Það þarf ekki endilega að skrá sig sem notanda til að geta notað spjallborðið, það er vefstjóri sem ákveður það hvort sá möguleiki er til staðar eða ekki. Stjórn Retrieverdeildarinnar ákvað það að einungis skráðir notendur geti tekið þátt í umræðum á spjallborðinu. Með því að innskrá þig þá færðu þú aðgang að nokkrum möguleikum sem þú hefðir annars ekki. Það tekur bara nokkrar mínútur að skrá sig sem notanda og er ráðlagt að þú gerir það.
Fara efst í skjal
 
Gleymt lykilorð
Ef þú hefur glatað lykilorði þínu þá er ekkert að óttast. Það er ekki hægt að endursenda lykilorð sem notandi valdi en það er hægt að endursetja það sem þýðir að nýtt lykilorð er búið til fyrir þig. Til að endursetja lykilorð þá smellt á Innskráninga hnappinn og á innskráningasíðunni er tengill sem heitir Gleymt lykilorð. Með því að smella á þann tengil þá opnast gluggi þar sem þú ert beðinn um að rita notandanafn þitt og netfang sem nýja lykilorðið verður sent til. Ef þessi möguleiki virkar ekki þá hefur þú ekki ritað löglegt netfang í prófílinn þinn og þú þarft að hafa samband við vefstjóra og fá hann til að breyta og/eða leiðrétta netfang þitt.
Fara efst í skjal
 
Ég hef skráð mig sem notanda fyrir nokkru síðan en get ekki innskráð mig
Það getur verið að þú hafir ekki sent neitt inn á spjallborðið í langan tíma eða þú hafir bara alls ekki sent neitt inn á spjallborðið. Vefstjórar eiga það sameiginlegt að fara yfir grunninn annað slagið og eyða út óvirkum notendum til að auka fjölbreytni á notendanöfnum og einnig til að minnka stærð gagnagrunnsins.
Fara efst í skjal

Forgangsréttur notanda og uppsetning spjallborðsins.
Hvernig breyti ég uppsetningu á minni?
Þú getur breytt uppsetningu þinni, upplýsingum í prófílnum þínum, skráningarupplýsingum o.s.frv. frá stjórnborð notanda, eftir að þú hefur innskráð þig á spjallborðið. Þú munt geta stjórnað ýmsu um útlit og aðra notendur frá þessu stjórnborði.
Fara efst í skjal
 
Dagsetning og tími passar ekki við minn tíma
Tími spjallborðsins er tíminn sem eru á vefþjóninum sem vistar síðuna, ef síðan væri vistuð utan Íslands þá væri það tími þess lands, sem vistaði síðuna, sem réði. Til að breyta dags og tímasetningu í þinn staðartíma þá ferð þú í 'Sýnilegt á spjallborði' sem er hér Yfirlit yfir stjórnborð notanda, og breytir hversu mörgum klst. þú vilt færa tíman fram eða aftur. Spjallborðið gerir ekki greinamun á sumar og vetrar tíma svo þær breytingar verður þú að sjá um sjálf(ur).
Fara efst í skjal
 
Hvað gefur staða mín í ljós?
Staða þín gefur til kynna í hvaða notandahóp þú hefur skráð þig í og skilgreinir í raun hverskonar aðgang viðkomandi hefur, t.d. stjórendur og vefstjóri hafa sérstakan aðgang. Það fer eftir uppsetningu spjallborðsins hversu breytilegar heimildirnar eru á milli notenda.
Fara efst í skjal
 
Get ég breytt stöðu minni?
Undir öllum eðlilegum kringumstæðum þá getur þú það ekki en vefstjóri hefur sett upp stigakerfi sem veitir þér auknar heimildir eftir að þú hefur færst upp um hóp. Þegar ákveðnum fjölda pósta á borðið er náð þá aukast hjá þér heimildirnar.
Fara efst í skjal

Send umræðuefni
Hvernig tek ég þátt í umræðunum?
Til að setja eitthvað inn á spjallborðið, smelltu þá á viðeignandi hnapp á umræðuhópi eða umræðu sem þú vilt senda póstinn á. Það fer eftir því hvernig vefstjóri hefur sett upp spjallborðið hvort þú þurfir að innskrá þig fyrst til að geta sett eitthvað á spjallborðið. Til hægðarauka fyrir þig þá eru umræðuhóparnir í flettilista neðst á umræðusíðunum.
Fara efst í skjal
 
Hvernig eyði ég sendum skeytum?
Ef þú ert ekki stjórnandi eða vefstjóri þá getur þú aðeins eytt þínum eigin sendingum, þ.e.a.s. ef spjallborðið hefur ekki verið sett upp þannig að eingöngu stjórnendur geti eytt út póstum. Ef almennir notendur hafa leyfi til að eyða póstum þá geta þeir ekki eytt út póstum sem hefur verið svarað.
Fara efst í skjal
 
Hvernig breyti ég sendum skeytum?
Ef þú ert ekki stjórnandi eða vefstjóri þá getur þú aðeins breytt þínum eigin sendingum og aðeins ef stjórnandi eða vefstjóri hefur gefið þér réttindi til að gera það. Þegar þú breytir sendingum frá þér mun koma fram, fyrir neðan sendingu þína, notandanafn þitt, tími og hvaða dag póstinum var breytt.
Fara efst í skjal
 
Hvernig læt ég undirskrift fylgja sendum skeytum?
Ef vefstjóri hefur leyft að undirskriftir séu notaðar þá þá er hægt að láta undirskrift fylgja skeytum með því að fara í Stillingar og velja þar Breyta prófíl, eftir að þú hefur búið til undirskrift þína þá getur þú virkjað hana með því að haka við við möguleikan 'Sýna undirskrift' í forminu.
Fara efst í skjal
 
Hvernig bý ég til könnun?
Ef þú hefur fullnægjandi réttindi til að búa til kannnanir á spjallborðin þá muntu sjá 'New Poll' hnappinn efst á skjánum fyrir spjallborðin og umræðurnar. Þegar búið er til könnun þá þarf að rita ákveðna spurningu og a.m.k. tvo svarmöguleika. Þú getur líka valið hvort fólk megi kjósa mörgum sinnum eða bara einu sinni.
Fara efst í skjal
 
Afhverju get ég ekki skoðað umræðuhóp?
Hægt er að setja sum spjallborðin og/eða umræðurnar þannig upp að aðeins ákveðnir notendur eða hópar geta tekið þátt í þeim. Til að geta skoðað, sent o.s.frv. þá þarft stjórnandi umræðunnar eða vefstjóri að gefa þér heimild til þess.
Fara efst í skjal
 
Rich Text ritill (WYSIWYG) til að senda skeyti
Ef þú notar Internet Explorer 5+ (bara windows), Netscape 7.1, Mozilla 1.3+, Mozilla Firebird 0.6.1+, og ef vefstjóri hefur virkjað þann möguleika að þú getir haft Rich Text (WYSIWYG) ritil til að rita skilboð. Ef þú átt í vandræðum með að nota WYSIWYG ritilinn þá getur þú hætt að nota þennan WYSIWYG ritil einfaldlega með því að breyta stillingunum fyrir hann í prófílnum hjá þér og taka af virknina fyrir hann.
Fara efst í skjal

Hönnun skeyta
Hvað er merkjamál spjallborðsins?
Merkjamál spjallborðsins leyfir þér að sníða skilboðin sem þú sendir inn á spjallborðið. Merkjamálið er mjög keimlíkt HTML nema tögin eru ekki örvar heldur hálfopinir kassar, [ og ], heldur en, < og >. Þú getur afvirkjað merkjamálið, þegar þú sendir skeyti. Smelltu hér til að skoða þau merkjamál sem eru möguleg á spjallborðinu.
Fara efst í skjal
 
Get ég notað HTML?
Þú getur ekki notað HTML í því sem sent er inn á spjallborðið, Það er gert af öryggisástæðum vegna þess að hægt er að nota HTML merki til að eyðileggja hönnun spjallsins eða láta vafra hreinlega hrynja þegar notandi reynir að skoða póstsendingar.
Fara efst í skjal
 
Hvað eru tilfinningatákn (Broskarlar)?
Tilfinningatáknin eða broskarlar eru smámyndir sem hægt er að nota til að sýna tilfinningar. Ef vefstjóri hefur leyft tilfinningatákn þá ættir þú að geta séð þau við hliðina á textaritlinum þegar skeyti er sent inn á spjallborðið. Til að setja einhvern broskarl með því sem þú ritar þá einfaldlega velur þú þann broskarl sem þú vilt að fylgi með póstinum þínum.
Fara efst í skjal
 
Get ég sent inn myndir?
Hægt er að senda inn myndir ef vefstjóri hefur opnað fyrir þann möguleika að þú getir sótt myndir í þína tölvu og sent á spjallborðið. Ef vísa skal í mynd sem er geymd einhversstaðar á netinu þá skal rita slóð að þeirri mynd, t.d. http://www.mysite.com/my-picture.jpg.
Fara efst í skjal
 
Hvað eru lokaðar umræður?
Stjórnendur eða vefstjóri geta lokað umræðu. Eftir að umræðu hefur verið lokað þá er ekki hægt að senda inn svarsendingar eða greiða atkvæði í könnunum í þeirri umræðu.
Fara efst í skjal

Notendahópar
Hvað eru vefstjórar?
Vefstjóri er sá sem hefur öll réttindi á þessu spjalli, vefstjóri getur sett á eða tekið af einhverja eiginleika sem eru á spjallborðinu, útilokað notendur, fjarlægt notendur, breytt eða eytt póstum, búið til notendahópa o.s.frv.
Fara efst í skjal
 
Hvað eru stjórnendur?
Stjórnendur er einstaklingur eða hópur af notendum sem geta séð um daglega notkunn spjallborðsins. Þeir hafa vald til að breyta, eyða, færa, loka, opna, umræður og pósta, hjá þeim spjallhópum sem þeir hafa réttindi á. Stjórendur koma oftast nær í veg fyrir það að notendur sendi inn móðgandi, særandi eða breiði út munnmælasögur um skráða notendur eða aðra.
Fara efst í skjal
 
Hvað eru notendahópar?
Notandahópar er, eins og nafnið gefur til kynna, hópur af notendum. Notandahópar er ein leið til að flokka notendur eftir áhugamálum. Hver notandi er meðlimur í einhverjum notandahóp og hver hópur getur haft einhver ákveðin réttindi á spjallborðinu, til að lesa, taka þátt í umræðum, búa til kannanir, o.s.frv.
Fara efst í skjal

Einkaskilaboð
Ég get ekki sent einkaskilaboð
Það geta verið nokkrar ástæður fyrir þessu, Þú ert ekki innskráður, þú hefur ekki skráð þig sem notanda, eða vefstjóri hefur ekki virkjað þann möguleika að geta sent einkaskilaboð.
Fara efst í skjal
 
Ég get ekki sent einkaskilaboð til sumra notenda
Það getur verið vegna þess að viðkomandi hefur útilokað þig til að senda sér einkaskilaboð, ef það er málið þá átt þú að fá skilaboð þess efnis.
Fara efst í skjal
 
Hvernig get ég komið í veg fyrir að einhver sendi mér persónuleg skilaboð?
Ef þú ert að fá eitthvað af persónulegum skilaboðum, sem þú hefur ekki óskað eftir, frá einhverjum notanda þá getur þú útilokað viðkomandi frá því að senda þér einkaskilaboð. Til að gera það þá ferð þú í Stillingar >> Einkaskilaboð >> Buddy List og bætir viðkomandi við listan hjá þér. Þegar þú bætir viðkomandi á listan þá velur þú í flettiglugganum 'Hafa ekki samband við mig', Þetta kemur í veg fyrir það að viðkomandi geti sent þér einkaskilaboð.
Fara efst í skjal

Fara á umræðu

Powered by Web Wiz Forums version 7.92
Copyright ©2001-2004 Web Wiz Guide

Þessi síða var gerð á 0,0625 sek.