Reglur | Fundagerðir
Um deildina
Almennar upplýsingar
Retrieverdeild er sameiginleg deild allra retrievertegunda á Íslandi.
Nú eru til fimm tegundir retriever hunda í ættbók HRFÍ:
- Chesapeake Bay retriever
- Curly-coated retriever
- Flat-coated retriever
- Golden retriever
- Labrador retriever (gulur, svartur og brúnn)
Deildin er ráðgefandi um paranir, stendur fyrir fyrirlestrum og ýmsum uppákomum fyrir eigendur þessara hunda.
Allar upplýsingar um retrieverhunda og starfsemi deildarinnar eru veittar hjá formanni deildarinnar, sjá Stjórn.
Pörunarbeiðnir skal senda á netfangið retriever@retriever.is
Pörunarbeiðnir skulu berast ræktunarstjórn a.m.k. Tveimur mánuðum fyrir fyrirhugaða pörun (sjá nánar Starfsreglur ræktunardeilda HRFÍ http://www.hrfi.is/Default.asp?Page=259).
Ræktunarstjórn mælir eingöngu með pörunum þar sem þau dýr sem para á:
- eru mjaðma- og olnbogamynduð og greining sé A eða B (HD/ED FRI).
- eru augnkoðuð og augnskoðunarvottorð ekki eldra en 18 mánaða.
- eru DNA prófuð fyrir PRA og greiningin sé Normal/Clear (N/C) eða eru sannanlega arfhrein frá foreldrum, Normal/Clear by parentage (N/C/P) (Á við um Chesapeake Bay retriever, Golden retriever, Labrador retriever og Nova Scotia Duck Tolling retriever).
- hafi tekið þátt a.m.k. Einu sinni á sýningu HRFÍ eða hjá öðrum félögum viðurkenndum af FCI og náð a.m.k. . Good (2. einkunn í OFL eða VFL.) og/eða
- hafi tekið þátt í veiðiprófi hjá Retrieverdeild HRFÍ eða öðrum retrieverklúbbum innan félaga viðurkenndum af FCI og náð a.m.k. 3. einkunn í OFL.
Stefna ræktunarstjórnar er að íslenskir retriever hundar:
- séu andlega og líkamlega heilbrigðir
- séu án erfðargalla
- uppfylli kröfur um útlit og byggingu
- uppfylli kröfur um vinnueiginleika kynsins
Dómaralisti
Sýningar Sigríður Pétursdóttir
Veiðipróf
Dagur Jónsson
Halldór G. Björnsson
Margrét Pétursdóttir
Sigurður Ben. Björnsson
Sigurður Magnússon
Sigurmon Marvin Hreinsson
Spor
Albert Steingrímsson
|